Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 71

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    71:1 Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar.

    71:2 Frelsa mig og bjarga mér eftir réttlæti þínu, hneig eyru þín til mín og hjálpa mér.

    71:3 Ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar, því að þú ert bjarg mitt og vígi.

    71:4 Guð minn, bjarga mér úr hendi illgjarnra, undan valdi illvirkja og harðstjóra.

    71:5 Því að þú ert von mín, þú, Drottinn, ert athvarf mitt frá æsku.

    71:6 Við þig hefi ég stuðst frá móðurlífi, frá móðurskauti hefir þú verið skjól mitt, um þig hljómar ætíð lofsöngur minn.

    71:7 Ég er mörgum orðinn sem undur, en þú ert mér öruggt hæli.

    71:8 Munnur minn er fullur af lofstír þínum, af dýrð þinni daginn allan.

    71:9 Útskúfa mér eigi í elli minni, yfirgef mig eigi, þá er þróttur minn þverrar.

    71:10 Því að óvinir mínir tala um mig, þeir er sitja um líf mitt, bera ráð sín saman:

    71:11 ,,Guð hefir yfirgefið hann. Eltið hann og grípið hann, því að enginn bjargar.``

    71:12 Guð, ver eigi fjarri mér, Guð minn, skunda til liðs við mig.

    71:13 Lát þá er sýna mér fjandskap farast með skömm, lát þá íklæðast háðung og svívirðing, er óska mér ógæfu.

    71:14 En ég vil sífellt vona og auka enn á allan lofstír þinn.

    71:15 Munnur minn skal segja frá réttlæti þínu, frá hjálpsemdum þínum allan daginn, því að ég veit eigi tölu á þeim.

    71:16 Ég vil segja frá máttarverkum Drottins, ég vil boða réttlæti þitt, það eitt.

    71:17 Guð, þú hefir kennt mér frá æsku, og allt til þessa kunngjöri ég dásemdarverk þín.

    71:18 Yfirgef mig eigi, ó Guð, þegar ég er gamall orðinn og grár fyrir hærum, að ég megi kunngjöra styrkleik þinn komandi kynslóð.

    71:19 Máttur þinn og réttlæti þitt, ó Guð, nær til himins, þú sem hefir framið stórvirki, Guð, hver er sem þú?

    71:20 Þú sem hefir látið oss horfa upp á miklar nauðir og ógæfu, þú munt láta oss lifna við að nýju og láta oss aftur stíga upp úr undirdjúpum jarðar.

    71:21 Þú munt auka við tign mína og aftur veita mér huggun.

    71:22 Þá vil ég lofa trúfesti þína með hörpuleik, Guð minn, leika á gígju fyrir þér, þú Hinn heilagi í Ísrael.

    71:23 Varir mínar skulu fagna, er ég leik fyrir þér, og sál mín er þú hefir leyst.

    71:24 Þá skal og tunga mín tala um réttlæti þitt liðlangan daginn, því að þeir urðu til skammar, já hlutu kinnroða, er óskuðu mér ógæfu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine