Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 72

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    72:1 Eftir Salómon. Guð, sel konungi í hendur dóma þína og konungssyni réttlæti þitt,

    72:2 að hann dæmi lýð þinn með réttvísi og þína þjáðu með sanngirni.

    72:3 Fjöllin beri lýðnum frið og hálsarnir réttlæti.

    72:4 Hann láti hina þjáðu meðal lýðsins ná rétti sínum, hann hjálpi hinum snauðu og kremji kúgarann.

    72:5 Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið ber birtu, frá kyni til kyns.

    72:6 Hann mun falla sem regn á slægjuland, sem regnskúrir, er vökva landið.

    72:7 Um hans daga skal réttlætið blómgast og gnóttir friðar, uns tunglið er eigi framar til.

    72:8 Og hann skal ríkja frá hafi til hafs, frá Fljótinu til endimarka jarðar.

    72:9 Fjandmenn hans skulu beygja kné fyrir honum og óvinir hans sleikja duftið.

    72:10 Konungarnir frá Tarsis og eylöndunum skulu koma með gjafir, konungarnir frá Saba og Seba skulu færa skatt.

    72:11 Og allir konungar skulu lúta honum, allar þjóðir þjóna honum.

    72:12 Hann bjargar hinum snauða, er hrópar á hjálp, og hinum þjáða, er enginn liðsinnir.

    72:13 Hann aumkast yfir bágstadda og snauða, og fátækum hjálpar hann.

    72:14 Frá ofbeldi og ofríki leysir hann þá, og blóð þeirra er dýrmætt í augum hans.

    72:15 Hann mun lifa og menn munu gefa honum Saba-gull, menn munu sífellt biðja fyrir honum, blessa hann liðlangan daginn.

    72:16 Gnóttir korns munu vera í landinu, á fjallatindunum, í gróðri þess mun þjóta eins og í Líbanon, og menn skulu spretta upp í borgunum eins og gras úr jörðu.

    72:17 Nafn hans mun vara að eilífu, meðan sólin skín mun nafn hans gróa. Og með honum skulu allar ættkvíslir jarðarinnar óska sér blessunar, allar þjóðir munu hann sælan segja.

    72:18 Lofaður sé Drottinn, Guð, Ísraels Guð, sem einn gjörir furðuverk,

    72:19 og lofað sé hans dýrlega nafn um eilífð, og öll jörðin fyllist dýrð hans. Amen, amen.

    72:20 Bænir Davíðs Ísaísonar eru á enda.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine