Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 73

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    73:1 Asafs-sálmur. Vissulega er Guð góður við Ísrael, við þá sem hjartahreinir eru.

    73:2 Nærri lá, að fætur mínir hrösuðu, lítið vantaði á, að ég skriðnaði í skrefi,

    73:3 því að ég fylltist gremju út af hinum hrokafullu, þegar ég sá gengi hinna guðlausu.

    73:4 Þeir hafa engar hörmungar að bera, líkami þeirra er heill og hraustur.

    73:5 Þeim mætir engin mæða sem öðrum mönnum, og þeir verða eigi fyrir neinum áföllum eins og aðrir menn.

    73:6 Fyrir því er hrokinn hálsfesti þeirra, þeir eru sveipaðir ofríki eins og yfirhöfn.

    73:7 Frá mörhjarta kemur misgjörð þeirra, girndir þeirra ganga fram úr öllu hófi.

    73:8 Þeir spotta og tala af illsku, mæla kúgunarorð í mikilmennsku sinni.

    73:9 Með munni sínum snerta þeir himininn, en tunga þeirra er tíðförul um jörðina.

    73:10 Fyrir því aðhyllist lýðurinn þá og teygar gnóttir vatns.

    73:11 Þeir segja: ,,Hvernig ætti Guð að vita og Hinn hæsti að hafa nokkra þekkingu?``

    73:12 Sjá, þessir menn eru guðlausir, og þó lifa þeir ætíð áhyggjulausir og auka efni sín.

    73:13 Vissulega hefi ég til ónýtis haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar í sakleysi,

    73:14 ég þjáist allan daginn, og á hverjum morgni bíður mín hirting.

    73:15 Ef ég hefði haft í hyggju að tala þannig, sjá, þá hefði ég brugðið trúnaði við kyn barna þinna.

    73:16 En ég hugsaði um, hvernig ég ætti að skilja það, það var erfitt í augum mínum,

    73:17 uns ég kom inn í helgidóma Guðs og skildi afdrif þeirra:

    73:18 Vissulega setur þú þá á sleipa jörð, þú lætur þá falla í rústir.

    73:19 Sviplega verða þeir að auðn, líða undir lok, tortímdir af skelfingum.

    73:20 Eins og draum er maður vaknar, þannig fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra, er þú ríst á fætur.

    73:21 Þegar beiskja var í hjarta mínu og kvölin nísti hug minn,

    73:22 þá var ég fáráðlingur og vissi ekkert, var sem skynlaus skepna gagnvart þér.

    73:23 En ég er ætíð hjá þér, þú heldur í hægri hönd mína.

    73:24 Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni, og síðan munt þú taka við mér í dýrð.

    73:25 Hvern á ég annars að á himnum? Og hafi ég þig, hirði ég eigi um neitt á jörðu.

    73:26 Þótt hold mitt og hjarta tærist, er Guð bjarg hjarta míns og hlutskipti mitt um eilífð.

    73:27 Því sjá, þeir sem fjarlægjast þig, farast, þú afmáir alla þá, sem eru þér ótrúir.

    73:28 En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég hefi gjört Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine