Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 74

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    74:1 Asafs-maskíl. Hví hefir þú, Guð, hafnað oss að fullu, hví rýkur reiði þín gegn gæsluhjörð þinni?

    74:2 Haf í minni söfnuð þinn, er þú aflaðir forðum og leystir til þess að vera kynkvísl óðals þíns, haf í minni Síonfjall, þar sem þú hefir tekið þér bústað.

    74:3 Bein þú skrefum þínum til hinna endalausu rústa: Öllu hafa óvinirnir spillt í helgidóminum!

    74:4 Fjandmenn þínir grenjuðu inni á samkomustað þínum, reistu upp hermerki sín.

    74:5 Eins og menn sem reiða hátt axir í þykkum skógi,

    74:6 höggva þeir allan útskurð, mölva með exi og hamri.

    74:7 Þeir hafa lagt eld í helgidóm þinn, vanhelgað bústað nafns þíns til grunna.

    74:8 Þeir hugsuðu með sjálfum sér: ,,Vér skulum tortíma þeim öllum.`` Þeir brenndu öll samkomuhús Guðs í landinu.

    74:9 Vér sjáum eigi merki vor, þar er enginn spámaður framar, og enginn er hjá oss sem veit hve lengi.

    74:10 Hversu lengi, ó Guð, á fjandmaðurinn að hæða, á óvinurinn að spotta nafn þitt um aldur?

    74:11 Hví dregur þú að þér hönd þína, hví geymir þú hægri hönd þína í barmi þér?

    74:12 Og þó er Guð konungur minn frá fornum tíðum, sá er framkvæmir hjálpræðisverk á jörðu.

    74:13 Þú klaufst hafið með mætti þínum, þú braust sundur höfuð drekans á vatninu,

    74:14 þú molaðir sundur hausa Levjatans, gafst hann dýrum eyðimerkurinnar að æti.

    74:15 Þú lést lindir og læki spretta upp, þú þurrkaðir upp sírennandi ár.

    74:16 Þinn er dagurinn og þín er nóttin, þú gjörðir ljós og sól.

    74:17 Þú settir öll takmörk jarðarinnar, sumar og vetur hefir þú gjört.

    74:18 Minnst þess, Drottinn, að óvinurinn lastmælir, og heimskur lýður smánar nafn þitt.

    74:19 Ofursel eigi villidýrunum sál turtildúfu þinnar, gleym eigi um aldur lífi þinna hrjáðu.

    74:20 Gef gætur að sáttmála þínum, því að skúmaskot landsins eru full af bælum ofríkisins.

    74:21 Lát eigi þann er kúgun sætir, snúa aftur með svívirðing, lát hina hrjáðu og snauðu lofa nafn þitt.

    74:22 Rís upp, Guð, berst fyrir málefni þínu, minnst þú háðungar þeirrar, er þú sætir af heimskingjum daginn á enda.

    74:23 Gleym eigi hrópi fjenda þinna, glaumkæti andstæðinga þinna, þeirri er sífellt stígur upp.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine