Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 75

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    75:1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð.

    75:2 Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.

    75:3 ,,Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.

    75:4 Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela]

    75:5 Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!

    75:6 Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!``

    75:7 Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,

    75:8 heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.

    75:9 Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.

    75:10 En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði.

    75:11 Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine