Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 76

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    76:1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Asafs-sálmur. Ljóð.

    76:2 Guð er augljós orðinn í Júda, í Ísrael er nafn hans mikið.

    76:3 Skáli hans er í Salem og bústaður hans á Síon.

    76:4 Þar braut hann sundur leiftur bogans, skjöld og sverð og hervopn. [Sela]

    76:5 Þú birtist dýrlegur, ógurlegri en hin öldnu fjöll.

    76:6 Hinir harðsvíruðu urðu öðrum að herfangi, þeir sofnuðu svefni sínum, og hendurnar brugðust öllum hetjunum.

    76:7 Fyrir ógnun þinni, Jakobs Guð, hnigu bæði vagnar og hestar í dá.

    76:8 Þú ert ógurlegur, og hver fær staðist fyrir þér, er þú reiðist?

    76:9 Frá himnum gjörðir þú dóm þinn heyrinkunnan, jörðin skelfdist og kyrrðist,

    76:10 þegar Guð reis upp til dóms til þess að hjálpa öllum hrjáðum á jörðu. [Sela]

    76:11 Því að reiði mannsins verður að lofa þig, leifum reiðinnar gyrðir þú þig.

    76:12 Vinnið heit og efnið þau við Drottin, Guð yðar, allir þeir sem eru umhverfis hann, skulu færa gjafir hinum óttalega,

    76:13 honum sem lægir ofstopa höfðingjanna, sem ógurlegur er konungum jarðarinnar.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine