Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 77

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    77:1 Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs-sálmur.

    77:2 Ég kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín.

    77:3 Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins, rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi.

    77:4 Ég minnist Guðs og kveina, ég styn, og andi minn örmagnast. [Sela]

    77:5 Þú heldur uppi augnalokum mínum, mér er órótt og ég má eigi mæla.

    77:6 Ég íhuga fyrri daga, ár þau sem löngu eru liðin,

    77:7 ég minnist strengjaleiks míns um nætur, ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar.

    77:8 Mun Drottinn þá útskúfa um eilífð og aldrei framar vera náðugur?

    77:9 Er miskunn hans lokið um eilífð, fyrirheit hans þrotin um aldir alda?

    77:10 Hefir Guð gleymt að sýna líkn, byrgt miskunn sína með reiði? [Sela]

    77:11 Þá sagði ég: ,,Þetta er kvöl mín, að hægri hönd Hins hæsta hefir brugðist.``

    77:12 Ég víðfrægi stórvirki Drottins, ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum,

    77:13 ég íhuga allar athafnir þínar, athuga stórvirki þín.

    77:14 Guð, helgur er vegur þinn, hver er svo mikill Guð sem Drottinn?

    77:15 Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir, þú hefir kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna.

    77:16 Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn, sonu Jakobs og Jósefs. [Sela]

    77:17 Vötnin sáu þig, ó Guð, vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu.

    77:18 Vatnið streymdi úr skýjunum, þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu.

    77:19 Reiðarþrumur þínar kváðu við, leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði.

    77:20 Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn, og spor þín urðu eigi rakin.

    77:21 Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð fyrir Móse og Aron.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine