Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 78

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    78:1 Asafs-maskíl. Hlýð þú, lýður minn, á kenning mína, hneigið eyrun að orðum munns míns.

    78:2 Ég vil opna munn minn með orðskviði, mæla fram gátur frá fornum tíðum.

    78:3 Það sem vér höfum heyrt og skilið og feður vorir sögðu oss,

    78:4 það viljum vér eigi dylja fyrir niðjum þeirra, er vér segjum seinni kynslóð frá lofstír Drottins og mætti hans og dásemdarverkum og þeim undrum er hann gjörði.

    78:5 Hann setti reglu í Jakob og skipaði lögmál í Ísrael, sem hann bauð feðrum vorum að kunngjöra sonum þeirra,

    78:6 til þess að seinni kynslóð mætti skilja það og synir þeir er fæðast mundu, mættu ganga fram og segja sonum sínum frá því,

    78:7 og setja traust sitt á Guð og eigi gleyma stórvirkjum Guðs, heldur varðveita boðorð hans,

    78:8 og eigi verða sem feður þeirra, þrjósk og ódæl kynslóð, kynslóð með óstöðugu hjarta og anda sem var Guði ótrúr.

    78:9 Niðjar Efraíms, herbúnir bogmenn, sneru við á orustudeginum.

    78:10 Þeir héldu eigi sáttmála Guðs og færðust undan að fylgja lögmáli hans.

    78:11 Þeir gleymdu stórvirkjum hans og dásemdum hans, er hann hafði látið þá horfa á.

    78:12 Í augsýn feðra þeirra hafði hann framið furðuverk í Egyptalandi og Sóanhéraði.

    78:13 Hann klauf hafið og lét þá fara yfir og lét vatnið standa sem vegg.

    78:14 Hann leiddi þá með skýinu um daga og alla nóttina með eldskini.

    78:15 Hann klauf björg í eyðimörkinni og gaf þeim gnóttir að drekka eins og úr stórvötnum,

    78:16 hann lét læki spretta upp úr klettinum og vatnið streyma niður sem fljót.

    78:17 Þó héldu þeir áfram að syndga í gegn honum, að rísa í gegn Hinum hæsta í eyðimörkinni.

    78:18 Þeir freistuðu Guðs í hjörtum sínum, er þeir kröfðust matar þess er þeir girntust

    78:19 og töluðu gegn Guði og sögðu: ,,Skyldi Guð geta búið borð í eyðimörkinni?

    78:20 Víst sló hann á klettinn, svo að vatnið vall upp og lækir streymdu, en skyldi hann líka geta gefið brauð eða veitt lýð sínum kjöt?``

    78:21 Fyrir því reiddist Drottinn, er hann heyrði þetta, eldur bálaði upp gegn Jakob og reiði steig upp gegn Ísrael,

    78:22 af því að þeir trúðu eigi á Guð né treystu hjálp hans.

    78:23 Og hann bauð skýjunum að ofan og opnaði hurðir himinsins,

    78:24 lét manna rigna yfir þá til matar og gaf þeim himnakorn;

    78:25 englabrauð fengu menn að eta, fæði sendi hann þeim til saðningar.

    78:26 Hann lét austanvindinn taka sig upp í himninum og leiddi sunnanvindinn að með mætti sínum.

    78:27 Hann lét kjöti rigna yfir þá sem dufti og vængjuðum fuglum sem sjávarsandi,

    78:28 og hann lét þá falla niður í búðir sínar, umhverfis bústað sinn.

    78:29 Átu þeir og urðu vel saddir, og græðgi þeirra sefaði hann.

    78:30 En meðan þeir voru eigi horfnir frá græðgi sinni, meðan fæðan enn var í munni þeirra,

    78:31 þá steig reiði Guðs upp í gegn þeim. Hann deyddi hina gildustu meðal þeirra og lagði að velli æskumenn Ísraels.

    78:32 Þrátt fyrir allt þetta héldu þeir áfram að syndga og trúðu eigi á dásemdarverk hans.

    78:33 Þá lét hann daga þeirra hverfa í hégóma og ár þeirra enda í skelfingu.

    78:34 Þegar hann deyddi þá, leituðu þeir hans, sneru sér og spurðu eftir Guði

    78:35 og minntust þess, að Guð var klettur þeirra og Guð hinn hæsti frelsari þeirra.

    78:36 Þeir beittu við hann fagurgala með munni sínum og lugu að honum með tungum sínum.

    78:37 En hjarta þeirra var eigi stöðugt gagnvart honum, og þeir voru eigi trúir sáttmála hans.

    78:38 En hann er miskunnsamur, hann fyrirgefur misgjörðir og tortímir eigi, hann stillir reiði sína hvað eftir annað og hleypir eigi fram allri bræði sinni.

    78:39 Hann minntist þess, að þeir voru hold, andgustur, sem líður burt og snýr eigi aftur.

    78:40 Hversu oft þrjóskuðust þeir við hann í eyðimörkinni, hryggðu hann á öræfunum.

    78:41 Og aftur freistuðu þeir Guðs og móðguðu Hinn heilaga í Ísrael.

    78:42 Þeir minntust eigi handar hans, eður dags þess, er hann frelsaði þá frá fjandmönnum þeirra,

    78:43 hann sem gjörði tákn sín í Egyptalandi og undur sín í Sóanhéraði.

    78:44 Hann breytti ám þeirra í blóð og lækjum þeirra, svo að þeir fengu eigi drukkið.

    78:45 Hann sendi flugur meðal þeirra, er bitu þá, og froska, er eyddu þeim.

    78:46 Hann gaf engisprettunum afurðir þeirra og jarðvörgunum uppskeru þeirra.

    78:47 Hann eyddi vínvið þeirra með haglhríð og mórberjatré þeirra með frosti.

    78:48 Hann ofurseldi haglhríðinni fénað þeirra og eldingunni hjarðir þeirra.

    78:49 Hann sendi heiftarreiði sína í gegn þeim, æði, bræði og nauðir, sveitir af sendiboðum ógæfunnar.

    78:50 Hann ruddi braut reiði sinni, þyrmdi eigi sálum þeirra við dauðanum og ofurseldi drepsóttinni líf þeirra.

    78:51 Hann laust alla frumburði í Egyptalandi, frumgróða styrkleikans í tjöldum Kams.

    78:52 Hann lét lýð sinn leggja af stað sem sauði og leiddi þá eins og hjörð í eyðimörkinni.

    78:53 Hann leiddi þá öruggt, svo að þeir óttuðust eigi, en óvini þeirra huldi hafið.

    78:54 Hann fór með þá til síns helga héraðs, til fjalllendis þess, er hægri hönd hans hafði aflað.

    78:55 Hann stökkti þjóðum undan þeim, skipti þeim niður eins og erfðahlut og lét kynkvíslir Ísraels setjast að í tjöldum þeirra.

    78:56 En þeir freistuðu í þrjósku sinni Guðs hins hæsta og gættu eigi vitnisburða hans.

    78:57 Þeir viku af leið, rufu trúnað sinn, eins og feður þeirra, brugðust eins og svikull bogi.

    78:58 Þeir egndu hann til reiði með fórnarhæðum sínum, vöktu vandlæti hans með skurðgoðum sínum.

    78:59 Guð heyrði það og reiddist og fékk mikla óbeit á Ísrael.

    78:60 Hann hafnaði bústaðnum í Síló, tjaldi því, er hann hafði reist meðal mannanna,

    78:61 hann ofurseldi hernáminu vegsemd sína og fjandmannshendi prýði sína.

    78:62 Hann seldi lýð sinn undir sverðseggjar og reiddist arfleifð sinni.

    78:63 Æskumönnum hans eyddi eldurinn og meyjar hans misstu brúðsöngs síns.

    78:64 Prestar hans féllu fyrir sverðseggjum, og ekkjur hans fengu engan líksöng flutt.

    78:65 Þá vaknaði Drottinn eins og af svefni, eins og hetja, sem hefir látið sigrast af víni.

    78:66 Hann barði fjandmenn sína á bakhlutina, lét þá sæta eilífri háðung.

    78:67 Samt hafnaði hann tjaldi Jósefs og útvaldi eigi kynkvísl Efraíms,

    78:68 heldur útvaldi hann Júda kynkvísl, Síonfjall, sem hann elskar.

    78:69 Hann reisti helgidóm sinn sem himinhæðir, grundvallaði hann að eilífu eins og jörðina.

    78:70 Hann útvaldi þjón sinn Davíð og tók hann frá fjárbyrgjunum.

    78:71 Hann sótti hann frá lambánum til þess að vera hirðir fyrir Jakob, lýð sinn, og fyrir Ísrael, arfleifð sína.

    78:72 Og Davíð var hirðir fyrir þá af heilum hug og leiddi þá með hygginni hendi.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine