Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 80

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    80:1 Til söngstjórans. Liljulag. Asafs-vitnisburður. Sálmur.

    80:2 Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð, þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð.

    80:3 Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím, Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar!

    80:4 Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

    80:5 Drottinn, Guð hersveitanna, hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns?

    80:6 Þú hefir gefið þeim tárabrauð að eta og fært þeim gnægð tára að drekka.

    80:7 Þú hefir gjört oss að þrætuefni nágranna vorra, og óvinir vorir gjöra gys að oss.

    80:8 Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

    80:9 Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi, stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann,

    80:10 þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið.

    80:11 Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré Guðs af greinum hans.

    80:12 Hann breiddi út álmur sínar til hafsins og teinunga sína til Fljótsins.

    80:13 Hví hefir þú brotið niður múrveggina um hann, svo að allir vegfarendur tína berin?

    80:14 Skógargeltirnir naga hann, og öll dýr merkurinnar bíta hann.

    80:15 Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur, lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa

    80:16 og varðveit það sem hægri hönd þín hefir plantað, og son þann, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa.

    80:17 Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn, fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir.

    80:18 Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd, yfir mannsins barni, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa,

    80:19 þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru, þá skulum vér ákalla nafn þitt.

    80:20 Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur, lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine