Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 81

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    81:1 Til söngstjórans. Á gittít. Asafs-sálmur.

    81:2 Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs.

    81:3 Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur.

    81:4 Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum, við tunglfylling á hátíðisdegi vorum.

    81:5 Því að þetta eru lög fyrir Ísrael, boðorð Jakobs Guðs.

    81:6 Hann gjörði það að reglu í Jósef, þá er hann fór út í móti Egyptalandi. Ég heyri mál, sem ég þekki eigi:

    81:7 ,,Ég hefi losað herðar hans við byrðina, hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna.

    81:8 Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig, ég bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum. [Sela]

    81:9 Heyr, lýður minn, að ég megi áminna þig, ó, að þú, Ísrael, vildir heyra mig!

    81:10 Enginn annar guð má vera meðal þín, og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja.

    81:11 Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, opna munn þinn, að ég megi seðja þig.

    81:12 En lýður minn heyrði eigi raust mína, og Ísrael var mér eigi auðsveipur.

    81:13 Þá sleppti ég þeim í þrjósku hjartna þeirra, þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta.

    81:14 Ó, að lýður minn vildi heyra mig, Ísrael ganga á mínum vegum,

    81:15 þá skyldi ég skjótt lægja óvini þeirra, og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra.

    81:16 Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum og ógæfutími þeirra vara að eilífu.

    81:17 Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að eta og seðja þig á hunangi úr klettunum.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine