Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 83

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    83:1 Ljóð. Asafs-sálmur.

    83:2 Guð, ver eigi hljóður, ver eigi þögull og hald eigi kyrru fyrir, ó Guð!

    83:3 Því sjá, óvinir þínir gjöra hark, og hatursmenn þínir hefja höfuðið,

    83:4 þeir bregða á slæg ráð gegn lýð þínum, bera ráð sín saman gegn þeim er þú geymir.

    83:5 Þeir segja: ,,Komið, látum oss uppræta þá, svo að þeir séu ekki þjóð framar, og nafns Ísraels verði eigi framar minnst!``

    83:6 Því að þeir hafa einhuga borið saman ráð sín, gegn þér hafa þeir gjört bandalag:

    83:7 Edómtjöld og Ísmaelítar, Móab og Hagrítar,

    83:8 Gebal, Ammon og Amalek, Filistea ásamt Týrusbúum.

    83:9 Assúr hefir einnig gjört bandalag við þá og ljær armlegg sinn Lots-sonum. [Sela]

    83:10 Far með þá eins og Midían, eins og Sísera, eins og Jabín við Kísonlæk,

    83:11 þeim var útrýmt hjá Endór, urðu að áburði á jörðina.

    83:12 Gjör þá, göfugmenni þeirra, eins og Óreb og Seeb, og alla höfðingja þeirra eins og Seba og Salmúna,

    83:13 þá er sögðu: ,,Vér viljum kasta eign vorri á vengi Guðs.``

    83:14 Guð vor, gjör þá sem rykmökk, sem hálmleggi fyrir vindi.

    83:15 Eins og eldur, sem brennir skóginn, eins og logi, sem bálast upp um fjöllin,

    83:16 svo skalt þú elta þá með ofviðri þínu, skelfa þá með fellibyl þínum.

    83:17 Lát andlit þeirra fyllast sneypu, að þeir megi leita nafns þíns, Drottinn!

    83:18 Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá sæta háðung og tortímast,

    83:19 að þeir megi komast að raun um, að þú einn heitir Drottinn, Hinn hæsti yfir allri jörðunni.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine