Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 85

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    85:1 Til söngstjórans. Kóraíta-sálmur.

    85:2 Þú hefir haft þóknun á landi þínu, Drottinn, snúið við hag Jakobs,

    85:3 þú hefir fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir þeirra. [Sela]

    85:4 Þú hefir dregið að þér alla bræði þína, látið af heiftarreiði þinni.

    85:5 Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors, og lát af gremju þinni í gegn oss.

    85:6 Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð, láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns?

    85:7 Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur, svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér?

    85:8 Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt!

    85:9 Ég vil hlýða á það sem Guð Drottinn talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra, er snúa hjarta sínu til hans.

    85:10 Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann, og vegsemdir munu búa í landi voru.

    85:11 Elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast.

    85:12 Trúfesti sprettur upp úr jörðunni, og réttlæti lítur niður af himni.

    85:13 Þá gefur og Drottinn gæði, og land vort veitir afurðir sínar.

    85:14 Réttlæti fer fyrir honum, og friður fylgir skrefum hans.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine