Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 86

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    86:1 Davíðs-bæn. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig, því að ég er hrjáður og snauður.

    86:2 Vernda líf mitt, því að ég er helgaður þér, hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.

    86:3 Ver mér náðugur, Drottinn, því þig ákalla ég allan daginn.

    86:4 Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.

    86:5 Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.

    86:6 Hlýð, Drottinn, á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.

    86:7 Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig, því að þú bænheyrir mig.

    86:8 Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn, og ekkert er sem þín verk.

    86:9 Allar þjóðir, er þú hefir skapað, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.

    86:10 Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk, þú einn, ó Guð!

    86:11 Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.

    86:12 Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,

    86:13 því að miskunn þín er mikil við mig, og þú hefir frelsað sál mína frá djúpi Heljar.

    86:14 Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð, og hópur ofríkismanna sækist eftir lífi mínu, eigi hafa þeir þig fyrir augum.

    86:15 En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.

    86:16 Snú þér að mér og ver mér náðugur, veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.

    86:17 Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir, að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine