Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 94

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    94:1 Drottinn, Guð hefndarinnar, Guð hefndarinnar, birst þú í geisladýrð!

    94:2 Rís þú upp, dómari jarðar, endurgjald ofstopamönnunum það er þeir hafa aðhafst!

    94:3 Hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn, hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn að fagna?

    94:4 Þeir ausa úr sér drambyrðum, allir illvirkjarnir rembast.

    94:5 Þeir kremja lýð þinn, Drottinn, þjá arfleifð þína,

    94:6 drepa ekkjur og aðkomandi og myrða föðurlausa

    94:7 og segja: ,,Drottinn sér það ekki, Jakobs Guð tekur eigi eftir því.``

    94:8 Takið eftir, þér hinir fíflsku meðal lýðsins, og þér fáráðlingar, hvenær ætlið þér að verða hyggnir?

    94:9 Mun sá eigi heyra, sem eyrað hefir plantað, mun sá eigi sjá, sem augað hefir til búið?

    94:10 Skyldi sá er agar þjóðirnar eigi hegna, hann sem kennir mönnunum þekkingu?

    94:11 Drottinn þekkir hugsanir mannsins, að þær eru einber hégómi.

    94:12 Sæll er sá maður, er þú agar, Drottinn, og fræðir í lögmáli þínu,

    94:13 til þess að hlífa honum við mótlætisdögunum, uns gröf er grafin fyrir óguðlega.

    94:14 Því að Drottinn hrindir eigi burt lýð sínum og yfirgefur eigi arfleifð sína,

    94:15 heldur mun rétturinn hverfa aftur til hins réttláta, og honum munu allir hjartahreinir fylgja.

    94:16 Hver rís upp mér til hjálpar gegn illvirkjunum, hver gengur fram fyrir mig gegn illgjörðamönnunum?

    94:17 Ef Drottinn veitti mér eigi fulltingi, þá mundi sál mín brátt hvíla í dauðaþögn.

    94:18 Þegar ég hugsaði: ,,Mér skriðnar fótur,`` þá studdi mig miskunn þín, Drottinn.

    94:19 Þegar miklar áhyggjur lögðust á hjarta mitt, hressti huggun þín sálu mína.

    94:20 Mun dómstóll spillingarinnar vera í bandalagi við þig, hann sem býr öðrum tjón undir yfirskini réttarins?

    94:21 Þeir ráðast á líf hins réttláta og sakfella saklaust blóð.

    94:22 En Drottinn er mér háborg og Guð minn klettur mér til hælis.

    94:23 Hann geldur þeim misgjörð þeirra og afmáir þá í illsku þeirra, Drottinn, Guð vor, afmáir þá.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine