Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 95

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    95:1 Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.

    95:2 Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum.

    95:3 Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum.

    95:4 Í hans hendi eru jarðardjúpin, og fjallatindarnir heyra honum til.

    95:5 Hans er hafið, hann hefir skapað það, og hendur hans mynduðu þurrlendið.

    95:6 Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum,

    95:7 því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans!

    95:8 Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni,

    95:9 þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín.

    95:10 Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði: ,,Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína.``

    95:11 Þess vegna sór ég í reiði minni: ,,Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine