Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ZECHARIAH 4

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    4:1 Þá vakti engillinn, er við mig talaði, mig aftur, eins og þegar maður er vakinn af svefni,

    4:2 og sagði við mig: ,,Hvað sér þú?`` Ég svaraði: ,,Ég sé ljósastiku, og er öll af gulli. Ofan á henni er olíuskál og á henni eru sjö lampar og sjö pípur fyrir lampana.

    4:3 Og hjá ljósastikunni standa tvö olíutré, annað hægra megin við olíuskálina, hitt vinstra megin.``

    4:4 Þá tók ég til máls og sagði við engilinn, sem við mig talaði: ,,Hvað merkir þetta, herra minn?``

    4:5 Og engillinn, sem við mig talaði, svaraði og sagði við mig: ,,Veistu ekki, hvað þetta merkir?`` Ég svaraði: ,,Nei, herra minn!``

    4:6 Þá tók hann til máls og sagði við mig: ,,Þetta eru orð Drottins til Serúbabels: Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn! _ segir Drottinn allsherjar.

    4:7 Hver ert þú, stóra fjall? Fyrir Serúbabel skalt þú verða að sléttu. Og hann mun færa út hornsteininn, og þá munu kveða við fagnaðaróp: Dýrlegur, dýrlegur er hann!``

    4:8 Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

    4:9 Hendur Serúbabels hafa lagt grundvöll þessa húss, hendur hans munu og fullgjöra það. Og þá skaltu viðurkenna, að Drottinn allsherjar hefir sent mig til yðar.

    4:10 Því að allir þeir, sem lítilsvirða þessa litlu byrjun, munu horfa fagnandi á blýlóðið í hendi Serúbabels. Þessir sjö lampar eru augu Drottins, sem líta yfir gjörvalla jörðina.

    4:11 Þá tók ég til máls og sagði við hann: ,,Hvað merkja þessi tvö olíutré, hægra og vinstra megin ljósastikunnar?``

    4:12 Og ég tók annað sinn til máls og sagði við hann: ,,Hvað merkja þær tvær olíuviðargreinar, sem eru við hliðina á þeim tveimur gullpípum, sem láta olífuolíu streyma út úr sér?``

    4:13 Þá sagði hann við mig: ,,Veistu ekki, hvað þær merkja?`` Ég svaraði: ,,Nei, herra minn!``

    4:14 Þá sagði hann: ,,Það eru þeir tveir smurðu, er standa frammi fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine