Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ZECHARIAH 5

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    5:1 Ég hóf aftur upp augu mín og sá bókrollu, sem var á flugi.

    5:2 Þá sagði hann við mig: ,,Hvað sér þú?`` Ég svaraði: ,,Ég sé bókrollu á flugi, tuttugu álna langa og tíu álna breiða.``

    5:3 Þá sagði hann við mig: ,,Þetta er bölvunin, sem út gengur yfir gjörvallt landið, því að sérhverjum sem stelur, verður samkvæmt henni sópað héðan, og sérhverjum sem meinsæri fremur, verður samkvæmt henni sópað héðan.``

    5:4 Ég hefi látið hana út ganga _ segir Drottinn allsherjar _ til þess að hún komi inn í hús þjófsins og inn í hús þess, sem meinsæri fremur við nafn mitt, og staðnæmist inni í húsi hans og eyði því bæði að viðum og veggjum.

    5:5 Þessu næst gekk fram engillinn, er við mig talaði, og sagði við mig: ,,Hef upp augu þín og sjá, hvað þar kemur fram!``

    5:6 Ég sagði: ,,Hvað er þetta?`` Þá sagði hann: ,,Þetta er efan, sem kemur í ljós.`` Þá sagði hann: ,,Þetta er misgjörð þeirra í öllu landinu.``

    5:7 Þá lyftist allt í einu upp kringlótt blýlok, og sat þar kona ein niðri í efunni.

    5:8 Þá sagði hann: ,,Þetta er Vonskan!`` _ kastaði henni ofan í efuna og kastaði blýlokinu ofan yfir opið.

    5:9 Síðan hóf ég upp augu mín og sá allt í einu tvær konur koma fram, og stóð vindur undir vængi þeim _ því að þær höfðu vængi sem storksvængi _ og hófu þær efuna upp milli jarðar og himins.

    5:10 Þá sagði ég við engilinn, sem við mig talaði: ,,Hvert fara þær með efuna?``

    5:11 Hann svaraði mér: ,,Þær ætla að reisa henni hús í Sínearlandi, og þegar það er búið, þá setja þær hana þar á sinn stað.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine