Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 11

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    11:1 Svikavog er Drottni andstyggð, en full vog yndi hans.

    11:2 Komi hroki, kemur smán, en hjá lítillátum er viska.

    11:3 Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá, en undirferli svikulla tortímir þeim.

    11:4 Auðæfi stoða ekki á degi reiðinnar, en réttlæti frelsar frá dauða.

    11:5 Réttlæti hins ráðvanda gjörir veg hans sléttan, en hinn óguðlegi fellur um guðleysi sitt.

    11:6 Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá, en hinir svikulu ánetjast í eigin græðgi.

    11:7 Þegar óguðlegur maður deyr, verður von hans að engu, og eftirvænting glæpamannanna er að engu orðin.

    11:8 Hinn réttláti frelsast úr nauðum, og hinn óguðlegi kemur í hans stað.

    11:9 Með munninum steypir hinn guðlausi náunga sínum í glötun, en hinir réttlátu frelsast fyrir þekkingu.

    11:10 Borgin fagnar yfir gæfu réttlátra, og þegar óguðlegir farast, gjalla gleðiópin.

    11:11 Borgin hefst fyrir blessun hreinskilinna, en fyrir munn óguðlegra steypist hún.

    11:12 Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu, en hygginn maður þegir.

    11:13 Sá er gengur um sem rógberi, lýstur upp leyndarmálum, en sá sem er staðfastur í lund, leynir sökinni.

    11:14 Þar sem engin stjórn er, þar fellur þjóðin, en þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.

    11:15 Hrapallega fer fyrir þeim, er gengur í ábyrgð fyrir annan mann, en sá sem hatar handsöl, er óhultur.

    11:16 Yndisleg kona hlýtur sæmd, og hinir sterku hljóta auðæfi.

    11:17 Kærleiksríkur maður gjörir sálu sinni gott, en hinn grimmi kvelur sitt eigið hold.

    11:18 Hinn óguðlegi aflar sér svikuls ávinnings, en sá er réttlæti sáir, sannra launa.

    11:19 Iðki einhver réttlæti, þá leiðir það til lífs, en ef hann eltir hið illa, leiðir það hann til dauða.

    11:20 Andstyggð fyrir Drottni eru þeir, sem hafa rangsnúið hjarta, en yndi hans þeir, er breyta ráðvandlega.

    11:21 Hér er höndin upp á það: Hinn vondi sleppur ekki óhegndur! en niðjar réttlátra komast undan.

    11:22 Eins og gullhringur í svínstrýni, svo er fríð kona, sem enga siðprýði kann.

    11:23 Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs, en vonir óguðlegra leiða yfir sig reiðidóm.

    11:24 Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari.

    11:25 Velgjörðasöm sál mettast ríkulega, og sá sem gefur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta.

    11:26 Fólkið formælir þeim, sem heldur í kornið, en blessun kemur yfir höfuð þess, er selur það.

    11:27 Sá sem leitar góðs, stundar það, sem velþóknanlegt er, en sá sem sækist eftir illu, verður fyrir því.

    11:28 Sá sem treystir á auð sinn, hann fellur, en hinir réttlátu munu grænka eins og laufið.

    11:29 Sá sem kemur ólagi á heimilishag sinn, erfir vind, og afglapinn verður þjónn hins vitra.

    11:30 Ávöxtur hins réttláta er lífstré, og hinn vitri hyllir að sér hjörtun.

    11:31 Sjá, hinn réttláti fær endurgjald hér á jörðu, hvað þá hinn óguðlegi og syndarinn?

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine