Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 12

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    12:1 Sá sem elskar aga, elskar þekking, en sá sem hatar umvöndun, er heimskur.

    12:2 Hinn góði hlýtur velþóknun af Drottni, en hrekkvísan mann fyrirdæmir hann.

    12:3 Enginn maður nær fótfestu með óguðleika, en rót hinna réttlátu mun eigi bifast.

    12:4 Væn kona er kóróna manns síns, en vond kona er sem rotnun í beinum hans.

    12:5 Hugsanir réttlátra stefna að rétti, en ráðagjörðir óguðlegra að svikum.

    12:6 Orð óguðlegra brugga banaráð, en munnur hreinskilinna frelsar þá.

    12:7 Óguðlegir kollsteypast og eru eigi framar til, en hús réttlátra stendur.

    12:8 Manninum verður hrósað eftir vitsmunum hans, en sá sem er rangsnúinn í hjarta, verður fyrirlitinn.

    12:9 Betra er að láta lítið yfir sér og hafa þjón en að berast mikið á og hafa ekki ofan í sig.

    12:10 Hinn réttláti er nærgætinn um þörf skepna sinna, en hjarta óguðlegra er hart.

    12:11 Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, er óvitur.

    12:12 Hinn óguðlegi ágirnist feng hinna vondu, en rót réttlátra er varanleg.

    12:13 Yfirsjón varanna er ill snara, en hinn réttláti bjargast úr nauðum.

    12:14 Af ávexti munnsins mettast maðurinn gæðum, og það sem hendur hans hafa öðrum gjört, kemur aftur yfir hann.

    12:15 Afglapanum finnst sinn vegur réttur, en vitur maður hlýðir á ráð.

    12:16 Gremja afglapans kemur þegar í ljós, en kænn maður dylur smán sína.

    12:17 Sá sem segir sannleikann hispurslaust, mælir fram það sem rétt er, en falsvotturinn svik.

    12:18 Þvaður sumra manna er sem spjótsstungur, en tunga hinna vitru græðir.

    12:19 Sannmálar varir munu ávallt standast, en lygin tunga aðeins stutta stund.

    12:20 Yfir svikum búa þeir, er illt brugga, en gleði valda þeir, er ráða til friðar.

    12:21 Réttlátum manni ber aldrei böl að hendi, en óhamingja hleðst á óguðlega.

    12:22 Lygavarir eru Drottni andstyggð, en þeir sem sannleik iðka, eru yndi hans.

    12:23 Kænn maður fer dult með þekking sína, en hjarta heimskingjanna fer hátt með flónsku sína.

    12:24 Hönd hinna iðnu mun drottna, en hangandi höndin verður vinnuskyld.

    12:25 Hugsýki beygir manninn, en vingjarnlegt orð gleður hann.

    12:26 Hinum réttláta vegnar betur en öðrum, en vegur óguðlegra leiðir þá í villu.

    12:27 Letinginn nær ekki villibráðinni, en iðnin er manninum dýrmætur auður.

    12:28 Á vegi réttlætisins er líf, en glæpaleiðin liggur út í dauðann.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine