Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 13

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    13:1 Vitur sonur hlýðir umvöndun föður síns, en spottarinn sinnir engum átölum.

    13:2 Maðurinn nýtur góðs af ávexti munnsins, en svikarana þyrstir í ofbeldi.

    13:3 Sá sem gætir munns síns, varðveitir líf sitt, en glötun er búin þeim, er ginið glennir.

    13:4 Sál letingjans girnist og fær ekki, en sál hinna iðnu mettast ríkulega.

    13:5 Réttlátur maður hatar fals, en hinn óguðlegi fremur skömm og svívirðu.

    13:6 Réttlætið verndar grandvara breytni, en guðleysið steypir syndaranum.

    13:7 Einn þykist ríkur, en á þó ekkert, annar læst vera fátækur, en á þó mikinn auð.

    13:8 Auðæfi mannsins eru lausnargjald fyrir líf hans, en hinn fátæki hlýðir ekki á neinar ávítur.

    13:9 Ljós réttlátra logar skært, en á lampa óguðlegra slokknar.

    13:10 Með hroka vekja menn aðeins þrætur, en hjá ráðþægnum mönnum er viska.

    13:11 Skjótfenginn auður minnkar, en sá sem safnar smátt og smátt, verður ríkur.

    13:12 Langdregin eftirvænting gjörir hjartað sjúkt, en uppfyllt ósk er lífstré.

    13:13 Sá sem fyrirlítur áminningarorð, býr sér glötun, en sá sem óttast boðorðið, hlýtur umbun.

    13:14 Kenning hins vitra er lífslind til þess að forðast snöru dauðans.

    13:15 Góðir vitsmunir veita hylli, en vegur svikaranna leiðir í glötun.

    13:16 Kænn maður gjörir allt með skynsemd, en heimskinginn breiðir út vitleysu.

    13:17 Óguðlegur sendiboði steypir í ógæfu, en trúr sendimaður er meinabót.

    13:18 Fátækt og smán hlýtur sá, er lætur áminning sem vind um eyrun þjóta, en sá sem tekur umvöndun, verður heiðraður.

    13:19 Uppfyllt ósk er sálunni sæt, en að forðast illt er heimskingjunum andstyggð.

    13:20 Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja.

    13:21 Óhamingjan eltir syndarana, en gæfan nær hinum réttlátu.

    13:22 Góður maður lætur eftir sig arf handa barnabörnunum, en eigur syndarans eru geymdar hinum réttláta.

    13:23 Nýbrotið land fátæklinganna gefur mikla fæðu, en mörgum er burtu kippt fyrir ranglæti sitt.

    13:24 Sá sem sparar vöndinn, hatar son sinn, en sá sem elskar hann, agar hann snemma.

    13:25 Hinn réttláti etur nægju sína, en kviður óguðlegra líður skort.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine