Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 14

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    14:1 Viska kvennanna reisir húsið, en fíflskan rífur það niður með höndum sínum.

    14:2 Sá sem framgengur í hreinskilni sinni, óttast Drottin, en sá sem fer krókaleiðir, fyrirlítur hann.

    14:3 Í munni afglapans er vöndur á hroka hans, en varir hinna vitru varðveita þá.

    14:4 Þar sem engin naut eru, þar er jatan tóm, en fyrir kraft uxans fæst mikill ágóði.

    14:5 Sannorður vottur lýgur ekki, en falsvottur fer með lygar.

    14:6 Spottarinn leitar visku, en finnur ekki, en hyggnum manni er þekkingin auðfengin.

    14:7 Gakk þú burt frá heimskum manni, og þú hefir ekki kynnst þekkingar-vörum.

    14:8 Viska hins kæna er í því fólgin, að hann skilur veg sinn, en fíflska heimskingjanna er svik.

    14:9 Afglaparnir gjöra gys að sektarfórnum, en meðal hreinskilinna er velþóknun.

    14:10 Hjartað eitt þekkir kvöl sína, og jafnvel í gleði þess getur enginn annar blandað sér.

    14:11 Hús óguðlegra mun eyðileggjast, en tjald hreinskilinna mun blómgast.

    14:12 Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.

    14:13 Jafnvel þótt hlegið sé, kennir hjartað til, og endir gleðinnar er tregi.

    14:14 Rangsnúið hjarta mettast af vegum sínum svo og góður maður af verkum sínum.

    14:15 Einfaldur maður trúir öllu, en kænn maður athugar fótmál sín.

    14:16 Vitur maður óttast hið illa og forðast það, en heimskinginn er framhleypinn og ugglaus.

    14:17 Uppstökkur maður fremur fíflsku, en hrekkvís maður verður hataður.

    14:18 Einfeldningarnir erfa fíflsku, en vitrir menn krýnast þekkingu.

    14:19 Hinir vondu verða að lúta hinum góðu, og hinir óguðlegu að standa við dyr réttlátra.

    14:20 Fátæklingurinn verður hvimleiður jafnvel vini sínum, en ríkismanninn elska margir.

    14:21 Sá sem fyrirlítur vin sinn, drýgir synd, en sæll er sá, sem miskunnar sig yfir hina voluðu.

    14:22 Vissulega villast þeir, er ástunda illt, en ást og trúfesti ávinna þeir sér, er gott stunda.

    14:23 Af öllu striti fæst ágóði, en munnfleiprið eitt leiðir aðeins til skorts.

    14:24 Vitrum mönnum er auður þeirra kóróna, en fíflska heimskingjanna er og verður fíflska.

    14:25 Sannorður vottur frelsar líf, en sá sem fer með lygar, er svikari.

    14:26 Í ótta Drottins er öruggt traust, og synir slíks manns munu athvarf eiga.

    14:27 Ótti Drottins er lífslind til þess að forðast snörur dauðans.

    14:28 Fólksmergðin er prýði konungsins, en mannaskorturinn steypir höfðingjanum.

    14:29 Sá sem er seinn til reiði, er ríkur að skynsemd, en hinn bráðlyndi sýnir mikla fíflsku.

    14:30 Rósamt hjarta er líf líkamans, en ástríða er eitur í beinum.

    14:31 Sá sem kúgar snauðan mann, óvirðir þann er skóp hann, en sá heiðrar hann, er miskunnar sig yfir fátækan.

    14:32 Hinn óguðlegi fellur á illsku sinni, en hinum réttláta er ráðvendnin athvarf.

    14:33 Í hjarta hyggins manns heldur viskan kyrru fyrir, en á meðal heimskingja gerir hún vart við sig.

    14:34 Réttlætið hefur upp lýðinn, en syndin er þjóðanna skömm.

    14:35 Vitur þjónn hlýtur hylli konungsins, en sá hefir reiði hans, sem skammarlega breytir.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine