Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 15

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    15:1 Mjúklegt andsvar stöðvar bræði, en meiðandi orð vekur reiði.

    15:2 Af tungu hinna vitru drýpur þekking, en munnur heimskingjanna eys úr sér vitleysu.

    15:3 Augu Drottins eru alls staðar, vakandi yfir vondum og góðum.

    15:4 Hógværð tungunnar er lífstré, en fals hennar veldur hugarkvöl.

    15:5 Afglapinn smáir aga föður síns, en sá sem tekur umvöndun, verður hygginn.

    15:6 Í húsi hins réttláta er mikill auður, en glundroði er í gróðafé hins óguðlega.

    15:7 Varir hinna vitru dreifa út þekkingu, en hjarta heimskingjanna er rangsnúið.

    15:8 Fórn óguðlegra er Drottni andstyggð, en bæn hreinskilinna er honum þóknanleg.

    15:9 Vegur hins óguðlega er Drottni andstyggilegur, en þann sem stundar réttlæti, elskar hann.

    15:10 Slæm hirting bíður þess, sem yfirgefur rétta leið, sá sem hatar umvöndun, hlýtur að deyja.

    15:11 Dánarheimur og undirdjúpin eru opin fyrir Drottni, hversu miklu fremur hjörtu mannanna barna!

    15:12 Spottaranum er ekki vel við, að vandað sé um við hann, til viturra manna fer hann ekki.

    15:13 Glatt hjarta gjörir andlitið hýrlegt, en sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur.

    15:14 Hjarta hins vitra leitar að þekking, en munnur heimskingjanna gæðir sér á fíflsku.

    15:15 Hinn volaði sér aldrei glaðan dag, en sá sem vel liggur á, er sífellt í veislu.

    15:16 Betra er lítið í ótta Drottins en mikill fjársjóður með áhyggjum.

    15:17 Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika en alinn uxi með hatri.

    15:18 Bráðlyndur maður vekur deilur, en sá sem seinn er til reiði, stillir þrætu.

    15:19 Vegur letingjans er eins og þyrnigerði, en gata hreinskilinna er brautarvegur.

    15:20 Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur maður fyrirlítur móður sína.

    15:21 Óvitrum manni er fíflskan gleði, en skynsamur maður gengur beint áfram.

    15:22 Áformin verða að engu, þar sem engin er ráðagerðin, en ef margir leggja á ráðin, fá þau framgang.

    15:23 Gleði hlýtur maðurinn af svari munns síns, og hversu fagurt er orð í tíma talað!

    15:24 Lífsins vegur liggur upp á við fyrir hinn hyggna, til þess að hann lendi ekki niður í Helju.

    15:25 Drottinn rífur niður hús dramblátra, en setur föst landamerki ekkjunnar.

    15:26 Ill áform eru Drottni andstyggð, en hrein eru vingjarnleg orð.

    15:27 Sá kemur ólagi á heimilishag sinn, sem fíkinn er í rangfenginn gróða, en sá sem hatar mútugjafir, mun lifa.

    15:28 Hjarta hins réttláta íhugar, hverju svara skuli, en munnur óguðlegra eys úr sér illsku.

    15:29 Drottinn er fjarlægur óguðlegum, en bæn réttlátra heyrir hann.

    15:30 Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað, góðar fréttir feita beinin.

    15:31 Eyra sem hlýðir á holla umvöndun, mun búa meðal hinna vitru.

    15:32 Sá sem aga hafnar, fyrirlítur sjálfan sig, en sá sem hlýðir á umvöndun, aflar sér hygginda.

    15:33 Ótti Drottins er ögun til visku, og auðmýkt er undanfari virðingar.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine